Nei hvaða kjaftæði.
Félagarnir leita eftir 90 módeli
til að sjá um blogg síðu!
Þarf að geta bloggað tvisvar á dag
um ekki neitt og gott
í að skrifa slúður um alls alls
ekki neitt. Einnig kostur að
viðkomandi hafi mikinn frítíma og
geti varið honum í að
fara inn og út af síðunni til að
fá sem flestar heimsóknir!
ne smá djókur á képs
En já langt síðan maður hefur sest
niður og pikkað smá blogg á lyklaborðið enda hefur verið feiki nóg
að gera. Vinnan alveg að drepa mann og margt annað líka.
Seinustu helgi skelltum við steinar
okkur á Akureyri á þessa blessuðu bíladaga. Það er kanski ekki
frásögu færandi nema það að þessi helgi var alveg frábær í næstum
alla staði. Föstudagurinn fer náttúrulega bara í sögubækurnar sem
eitthvað allra skemmtilegasta djamm allra tíma. Lögðum af stað ú
bænum eftir að hafa hætt fyrr og vorum komnir norður um
kvöldmatarleitið. Bílferðin var með besta móti. Leið hratt þar sem
fjöll og fyrnindi landsins fengu að fynna fyrir pumpandi góðri
tónlist. Þegar norður var komið var matur snæddur og síðan kýkt á
smá flex rúnnt. Fljótt voru bíllyklarnir settir til hliðar og
bjórinn tekinn í hönd. Eftir nokkra góða löbbuðum við niður á Kaffi
Karólínu og chilluðum þar með aðeins fleyri áfenga drykki á
borðinu. Eftir góða uppbyggingu tók Sjallinn við þar sem Desyn
Masiello var að spila og guð minn góður. Þetta var bara næst
skemmtilegasta kvöld sem ég hef farið á(fátt sem toppar Fedde). Við
steinar með hjálp smá vínanda vorum mættir upp á einhvern pall sem
var á miðju gólfi og byrjuðum að dansa eins og vindurinn(leiðinlega
böggandi líklega). Eftir líklega svona klukkutíma á pallinum var
pallurinn búinn á því enda vorum við búnir að toga ófáa uppá svo
pallurinn gaf sig. En ekki vorum við neitt á því að gefa okkur.
Steinar hvarf í faðm ókunnugar stelpu og ég fann annan pall.
Frábært klúbbakvöld í alla staði og vá hvað sjallinn er góður
staður fyrir svona kvöld. Hljóðkerfið var snelld, ljósin og bara
fólkið. Desyn stóð sig líka bara framar vonum og er ég sjúklega
ánægður með kvöldið eins og komið hefur fram.

Á laugardeginum var vaknað
óvenjulega ferskir miðað við aldur og fyrri störf og skelltum við
okkur út í smá sjoppufæði. Veðrið var alveg vangefið gott 20 stiga
hiti og Sólarflex var alveg málið og fátt sem er betra en
steikjandi sól og svell kaldur víking.



Við tókum okkur poka í hönd skelltum
nokkrum köldum í hann og rölltum niður á spyrnuna. Svolítið
svekkjandi hvað áhorfenda aðstæða við spyrnubrautina var slöpp en
þetta reddaðst allt saman. Seinna um kvöldið fórum við svo aftur á
Karó og síðar í splash partyið. Fáir í splash partyinu en við
lenntum í einhverju fólki frá Keflavík sem var að djamma í húsinu
við hliðin á splash. Kvöldið var bara helvíti fínt og setti kommuna
yfirð óið á gÓðri helgi.
Á sunnudeginum fórum við í
útskriftaveislu hjá Rögnu frænku minni sem var að útskrifast frá MA
til hamingju með það.... Síðan héldum við steinar heim á leið og
var gaman að hlusta á leikinn í hvalfyrðinum en við náðum seinni
hálfleik í sjónvarpinu og var helvíti gaman að sjá íslenskan
sigur...
En já þessa vikuna hef ég verið á
morgnana á flass 104,5 frá 7 til 10 fyrir hana Salvöri sem er
erlendis... Fullt af nýjum lögum í spilun á FLass myndi tjekka á
þessu.
Fleyri fréttir
-
Stulli Kom heim í
dag
-
Örvar laus við Gipsið en ennþá vel
spelkaður
-
Sindri og Stulli fara út 10 ágúst
stutt í það
-
Lag vikunnar : klárlega... Chris
Lake-Carry me Away.. Getið heyrt það á FLass 104,5 ásamt fullt af
öðrum ferskum nýjum lögum á ferskurstu
útvarpsstöðinni